Breytingar við sundlaug Dalvíkur

Sundlaug Dalvíkur verður lokuð í byrjun júní vegna breytinga, en til stendur að taka nýjan inngang íþróttamiðstöðvar í gagnið. Sumaropnun laugarinnar tekur ekki gildi fyrr en lokun lýkur. Áætlað er að það verði helgina 19. - 20. júní.

Í sumar verður sundlaugin opin um helgar frá kl. 10:00 - 19:00 og á virkum dögum kl. 06:15 - 20:00. 

Lokun laugarinnar verður auglýst nánar síðar.