Breyting á fimleikasýningu fimleikadeildarinnar

Í stað hefðbundinnar fimleikasýningar þá langar okkur í fimleikadeildinni að bjóða öllum bæjarbúum á opinn fimleikadag, laugardaginn 13.desember á milli 10:00-12:00 í íþróttamiðstöðinni. Við verðum með uppsett áhöld fyrir alla aldurshópa og hvetjum við alla til að koma og sjá hvað börnin hafa verið að æfa í vetur. Að sjálfsögðu mega allir koma með, ömmur, afar, frænkur og frændur og vonumst við til að sem flestir mæti í íþróttagallanum og sýni smá takta (þó það væri ekki nema einn kollhnís). Hlökkum mikið til að sjá ykkur öll á laugardaginn.

Kveðja
Þjálfarar og stjórn fimleikadeildar.