Borun á Birnunesborgum

Þessa dagana stendur yfir borun eftir heitu vatni á Birnunesborgum á Árskógsströnd. Síðastliðið mánudagskvöld var komið niður á vatnsæð og næstkomandi mánudag stendur til að framkvæma nákvæmar aðgerðir til að sjá hversu afkastamikil hún mun vera.

Nánari fréttir af jarðhitaborun við Birnunesborgir munu fylgja í kjölfarið.