Börn frá Grænlandi koma í sundkennslu til Dalvíkur

Í ágúst er fyrirhugað að fimm börn frá Ittoqqortoormiit á Grænlandi komi til Dalvíkurbyggðar til að læra sund. Ittoqqortoormiit er vinabær Dalvíkurbyggðar og vilji til samvinnu hefur verið á milli Bjarna Gunnarssonar æskulýðsfulltrúa og Sabine Moratz skólahjúkrunarfræðings. 

Veruleikaþátturinn "Celebrity Shock" frá Belgíu og velvild ungfrú Belgíu gerði börnunum kleift að koma í sundkennslu.

Hægt er sjá frétt í Webavisen.gl