Bolludagur

Bolludagur

Í dag er bolludagur og erum við í Kátakoti aldeilis búin að gæða okkur á bollum í dag. 

Í hádeginu fengum við fiskibollur að borða og síðan rjómabollu í eftirrétt. Í kaffitímanum voru heimabakaðar ostabollur smurðar með smjöri, smurosti eða mysingi.

Náðum myndum af nokkrum börnum háma í sig rjómabollurnar. Flestum fannst þær mjöööög góðar! :)