Bókadagur

Bókadagur

Í tilefni af bókadeginum í dag fórum við í heimsókn á bókasafnið. Þar tók Laufey vel á móti okkur. Hún sýndi okkur hvernig við ættum að umgangast bækur og kenndi okkur að fara vel með þær. Þá las hún sögu upp úr bókinni „Berin á lynginu“ sem fjallaði um kiðling sem var að læra að telja upp að tíu. Að lokum völdum við okkur bækur til að skoða og pössuðum að ganga frá þeim á réttan stað á eftir. Kíkið á myndirnar í myndasafninu.