Bleikur dagur

Bleikur dagur

Í dag föstudaginn 11. október héldum við bleikann rugludag á leikskólanum til stuðnings bleika deginum. Í dag varð því þónokkuð um rugling í leikskólanum og mættu sumir í bleikum fötum eða öfugum, náttfötum eða fötum af systkini sínu. Þá vakti það mikla undrun hjá börnunum að fá bleikann morgunmatAllt var til gamans gert og erum við nokkuð viss um að dagurinn hafi vakið mikla kátínu hjá börnum, foreldrum og starfsfólki. Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár, en bleikur er baráttulitur októbermánaðar, mánuður bleiku slaufunnar. Myndir af bleika deginum okkar má sjá á myndasíðunni!