Birna Lind 5 ára

Birna Lind 5 ára

Í dag hélt Birna Lind upp á 5 ára afmælið sitt en hún á afmæli á sunnudaginn. Hún bjó sér til voða fína kórónu. flaggaði íslenska fánanum og sungum við afmælissönginn fyrir hana. Í dag var líka vorhátíðin okkar og við fórum í skrúðgöngu og fengum grillaðar pylsur í hádeginu. Þetta var því mjög góður dagur til að halda upp á afmælið sitt. Við óskum Birnu Lind og fjölskyldu hennar til hamingju með daginn :)