Bilun í djúpdælu á Brimnesborgum

Nokkuð alvarleg bilun er í djúpdælu heitavatns á Brimnesborgum sem stendur. Viðgerð stendur yfir en hugsanlegt er að skortur verði á heitu vatni eftir klukkan 17:00 á Hauganesi, Árskógsströnd, Árkógssandi og sveitum þar á svæðinu, náist ekki að gera við bilun fyrir þann tíma.

Allar frekari upplýsingar varðandi bilunina veitir Þorsteinn K. Björnsson í síma 892-3892.