Barnamenningarhátíð 11. - 14. september 2013

Barnamenningarhátíð 11. - 14. september 2013

Barnamenningarhátíð verður nú haldinn í þriðja sinn í Dalvíkurbyggð dagana 11. - 14. september. Eins og fyrri hátíðir byggist hún upp á smiðjum af ýmsum toga en dagskráin er hérna fyrir neðan.

Barnamenningarhátíð 2013 - heildardagskrá

Miðvikudagurinn 11. sept

17:00 Krakkazumba í Víkurröst með Ingu Möggu. Opnunaratriði barnamenningarhátíðarinnar. Allir velkomnir að taka þátt í gleðinni. 


Fimmtudagurinn 12. sept

14:00 Tjillað í Tónó með Ármanni, sköpunarsmiðja fyrir 1. - 4. bekk. (2 klst)

15:00 Brimbrettasmiðja á sandinum með Óliver fyrir 7. - 10. bekk. Skráning hjá Viktori í síma 844 8639 ( 1,5 klst). Skráning hefst kl 15:00, 11. sept. Mæting í Víkurröst.

17:00 Björgunarsveitin með skemmtilega kynningu á ungliðastarfinu sínu í björgunarsveitarhúsinu fyrir 1. - 10. bekk.


Föstudagurinn 13. sept

14:00 Tjillað í Tónó með Ármanni, sköpunarsmiðja fyrir 5. - 7. bekk. (2 klst)

14:00 - 18:00 Listasmiðja í félagsmiðstöðinni, skartgripagerð, myndlist og fl. Allir velkomnir.

15:00 Klifursmiðja fyrir 1. -.6. bekk í Víkurröst með Óliver. (1 klst). Skráning hjá Viktori í síma 844 8639.

16:00 Klifursmiðja fyrir 7. - 10. bekk í Víkurröst með Óliver. (1 klst). Skráning hjá Viktori í síma 844 8639.

16:00 Tælensk matargerð með Nim fyrir 1. - 10. bekk. Smiðjan verður í Dalvíkurskóla. (2 klst). Skráning hjá Viktori í síma 844 8639.


Laugardagurinn 14. sept

10:00 Ljósmyndasmiðja með Sigurgeir í Bergi fyrir 5. - 10. bekk. Allir komi með eigin sjálfvirku myndavélar. (3 klst)

13:00-16:00 Pólskar og tælenskar barnabækur kynntar á bókasafninu ásamt upplestri. Allir velkomnir.

14:00-16:00 Fjölskylduratleikur í skógreitnum fyrir neðan Brekkusel. Létt og skemmtilegt fyrir alla fjölskylduna. Allir velkomnir.

17:00 Stórtónleikar Dr. Gunna og Heiðu í Bergi - fyrir alla fjölskylduna. Flutt verða lög af nýrri barnaplötu Dr. Gunna, til dæmis Glaðasti hundur í heimi. Ekki missa af þessu!!!


Nánari upplýsingar um smiðjur:

Tjillað í Tónó: Skemmtileg sköpunarsmiðja þar sem ýmislegt verður látið flakka. Unnið með hljóðfæri, spuna og ýmislegt fleira. Um að gera að mæta niður í tónlistarskóla og sjá hvað Ármanni dettur í hug að gera :o)
Umsjónamaður: Ármann
Staðsetning: Tónlistarskólinn
Tímasetning: 12.sept. kl. 14:00 fyrir 1. - 4. bekk og 13. sept. kl. 14:00 fyrir 5. - 7. bekk.
Engin skráning.

Brimbrettasmiðja: Kennd verða undirstöðuatriði á brimbretti. Þátttakendur fá bretti á staðnum og allan meðfylgjandi búnað. Einstakt tækifæri til að læra af einum færasta brimbrettamanni landsins.
Umsjónamaður: Óliver
Staðsetning: Sandurinn - Mæting í Víkurröst
Tímasetning: 12.sept. kl. 15:00 fyrir 7.—10. bekk
Skráning í síma 844 8639.

Björgunarsveitarkynning: Þessi smiðja verður haldin í Björgunarsveitarhúsinu þar sem Björgunarsveitin mun kynna ungliðastarfið sitt, sýna krökkunum aðstöðuna og gera sitthvað fleira skemmtilegt. Allir eru velkomnir.
Umsjónarmaður: Friðjón Árni
Staðsetning: Björgunarsveitarhúsið
Tímasetning: 12. sept. kl. 17:00
Engin skráning.

Listasmiðja: Félagsmiðstöðin kynnir nýja Listasmiðju í Víkurröst. Hægt verður að búa til skartgripi, mála og gera fleira skemmtilegt. Allir velkomnir í þessa smiðju.
Umsjónarmenn: Félagsmiðstöðin
Staðsetning: Víkurröst
Tímasetning: 13. sept. kl. 14:00 -18:00
Engin skráning.

Klifursmiðja: Kennd verða undirstöðuatriði í klifri í litlum hópum. Frábært fyrir þá sem vilja ná betri tökum á þessari skemmtilegu í íþrótt.
Umsjónarmaður: Óliver
Staðsetning: Víkurröst
Tímasetning: 13. sept kl. 15:00 fyrir 1. - 6. bekk og kl. 16:00 fyrir 7. - 10. bekk.
Skráning í síma 844 8639.

Tælensk matargerð: Áhugaverð smiðja þar sem tælensk matargerð verður í hávegum höfð. Einstak tækifæri til að læra að gera einfalda rétti frá grunni.
Umsjónarmaður: Nim
Staðsetning: Dalvíkurskóli
Tímasetning: 13. sept. kl. 16:00.
Skráning í síma 844 8639.

Ljósmyndasmiðja: Snillingurinn Sigurgeir ætlar að kenna undirstöðuatriði í ljósmyndun. Farið verður í grunninn, myndir teknar úti og síðan sett upp smá sýning í lokin. Þessi smiðja er miðuð við 5. - 10. bekk.
Umsjónarmaður: Sigurgeir
Staðsetning: Berg
Tímasetning: 14.sept. kl. 10:00.
Engin skráning.