Barnamenningarhátíð 10. - 13. september

Barnamenningarhátíð 10. - 13. september

Barnamenningarhátíð er nú haldin í fjórða sinn dagana 10. - 13. september.

Eins og fyrr verður ýmislegt í boði fyrir unga fólkið svo sem krakkazumba, matarsmiðjur, tjillað í Tónó, brimbrettasmiðja, legó smiðja, listasmiðja og klifursmiðja. Fjölskyldan er líka hvött til að taka þátt í fjölskylduratleik í Böggi sem og að mæta á stórtónleika Snorra Got Talent og Írisar Hauks í Bergi. Einnig geta nemendur úr 1. - 7. bekk tekið þátt í að kjósa um Bestu barnabókina 2013.

Frítt er í allar smiðjur og viðburði en athugið að í sumar smiðjurnar þarf að skrá börnin. Skráning hefst þriðjudaginn 9. september kl. 13:00 og taka skal fram að takmarkaður fjöldi kemst í hverja smiðju.

Dagskrá Barnamenningarhátíðar: