Barna- og unglingaráð fótboltans með lokahóf

Lokahóf Barna-og unglingaráðs verður haldið laugardaginn 1.september kl. 12:00 á Íþróttavellinum, áhorfendastúku eins og í fyrra. Ef veður er vont flytjum við okkur inn. 

Allir sem hafa stundað fótbolta frá haustinu 2011 eru hvattir til að mæta. Veittar verða viðurkenningar og eitthvað gott í gogginn verður í boði.
Kl. 14:00 er heimaleikur hjá Dalvík/Reyni gegn Reyni Sandgerði. Við hvetjum alla, foreldra og börn, að mæta og styðja við bakið á liðinu okkar.

Kl. 21:00 ætla stjórn, þjálfarar, foreldraráð og foreldrar að hittast á Við Höfnina. Þetta er nýjung í starfinu hjá okkur, foreldrar eru að koma meira og meira inn í starfsemina sem er frábært og því langar okkur til að slútta aðeins sumrinu með þeim líka. Hlökkum til að sjá sem flesta.

Stjórn Barna- og unglingaráðs Dalvíkur/Reynis