Bandið hans Bubba á stóru tjaldi í íþróttahúsinu

Bandið hans Bubba verður sýnt á stóru tjaldi í íþróttahúsinu í kvöld . Allir eru velkomnir og ekkert kostar inn. Eyþór Ingi mun flytja þrjú lög í úrslitaþætti Bandsins. Lag hins ástsæla söngvara Vilhjálms Vilhjálmssonar "Þú átt mig ein" en dómnefndin valdi þetta lag fyrir hann. Dómnefndin vill greinilega vita hversu svakalega góður Eyþór er, en lagið er gríðarlega erfitt í flutningi. Einnig mun hann taka lag Gunnars Þórðarsonar "Gull" en í eyrum flestra hljómar rödd Eiríks Haukssonar sem tók það með miklum tilþrifum. Eiríkur Hauksson er einmitt gestadómari í kvöld. Þriðja lagið er svo "Göngum yfir Brúna" eftir Mannakorn. Nú er um að gera að fjölmenna í íþróttahúsið og fagna saman þegar Eyþór vinnur keppnina um söngvarastöðuna í Bandinu hans Bubba.