Ball fyrir 5. - 7.bekk

Miðvikudaginn 16.nóvember ætlum við að halda ball fyrir nemendur 5. - 7.bekkjar. Ballið er fyrsta ball vetrarins í nýju húsakynnum okkar í Víkurröst og lofum við mikilli gleði. Ballið hefst klukkan 17:00 og stendur yfir til klukkan 18:30. Það kostar 200 krónur inn og verður sjoppan á sínum stað. Fjölmennum og eigum gleðistund í nýju félagsmiðstöðinni okkar! Plötusnúðar verða Júlía og Arnór Reyr.