Bæklingur á leiðinni

Bæklingur á leiðinni

Einblöðungur um Náttúrusetrið Húsabakka hefur verið tilbúinn um nokkurn tíma og bíður prentunar. Það eina sem upp á vantar er nýtt lógó fyrir Náttúrusetrið sem hefur tafist nokkuð í vinnslu. Bæklingnum er sérstaklega ætlað að höfða til þeirra sem eru á höttunum eftir hentugu húsnæði fyrir námskeið, fundi, skólabúðir, hvataferðir, ættarmót, og aðrar slíkar samkomur. Verður honum m.a. dreift í háskólastofnanir og til valdra félagasamtaka.