Bæjarráð sendir frá sér ályktun um álver á Bakka

Á bæjarráðsfund í gær kom Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri Norðurþings. Hann kynnti fyrir fundarmönnum stöðu verkefnis um uppbyggingu álvers á Bakka. Einnig óskaði hann eftir stuðningi bæjarráðs Dalvíkurbyggðar við verkefnið. Bæjarráð samþykkti samhljóða eftirfarandi ályktun.

Á undanförnum árum hefur mikill samdráttur í fiskvinnslu og landbúnaði haft veruleg áhrif á afkomu fólks, atvinnuöryggi og búsetu á landsbyggðinni. Á síðustu 10 árum hefur íbúum á svæðinu frá Húsavík til Raufarhafnar, sem nú heitir Norðurþing, til dæmis fækkað um 15%. Mest hefur fækkunin verið í aldurshópnum 40 ára og yngri, en í þeim aldursflokki hefur íbúum fækkað um 25%.

Kjölfesta í atvinnumálum er nauðsynleg til þess að snúa vörn í sókn og viðhalda gróskumikilli byggð á Norðausturlandi. Fyrirhugað álver á Bakka getur skapað þessa kjölfestu. Álverið mun skapa um 300 ný framtíðarstörf og afleidd störf verða mun fleiri og áhrifa þeirra mun gæta langt út fyrir Norðurþing, ekki síst á Eyjafjarðarsvæðinu. Bæjarráð Dalvíkurbyggðar skorar því á stjórnvöld að beita sér fyrir því að af þessum framkvæmdum geti orðið sem fyrst.