Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla

Frá Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla. 

Samkvæmt 2. grein skipulagsskrár sjóðsins er tilgangur hans að veita styrki til hvers konar menningarmála á starfssvæði Sparisjóðs Svarfdæla, en það er Dalvíkurbyggð og Hrísey. 

Umsóknum skal skilað fyrir 1. mars 2007 til stjórnar sjóðsins sem veitir nánari upplýsingar.  Stjórnina skipa: 

Björn Daníelsson, Laugabrekku, Svarfaðardal ( bjorndan@mi.is )

Dóróþea Reimarsdóttir, Steintúni 3, 620 Dalvík (dorotea@simnet.is)

Vera Sigurðardóttir, Selaklöpp, 630 Hrísey (veras@centrum.is)

 

Umsóknareyðublöð fást hjá ofanrituðum, á afgreiðslustöðum Sparisjóðsins og á heimasíðu hans. Slóðin er http://www.spsv.is

Stjórn Menningarsjóðs Sparisjóðs Svarfdæla