Auglýst eftir verkefnisstjóra félagsmiðstöðvar ungmenna á Dalvík

Auglýst er nýtt starf verkefnisstjóra í félagsmiðstöðinni Pleizinu á Dalvík. Um er að ræða 100% starf, en mögulegt að hafa það minna sé þess óskað. Viðkomandi ber ábyrgð á öllu félags- og hópastarfi félagsmiðstöðvarinnar. Lögð er mikil áhersla á góða samvinnu við alla hagsmunaaðila, s.s. Grunnskóla Dalvíkurbyggðar. Sjá nánar í auglýsingu og starfslýsingu.

Umsóknarfrestur er til og með 23. júní 2010.

Auglýsing

Starfslýsing