Auglýsing vegna deiliskipulagstillögu - Ytra-Holt

Samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Dalvíkurbyggðar 13. desember 2011 og í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að landbúnaðarsvæði í landi Ytra-Holts í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð.

Skipulagssvæðið Ytra-Holt í Svarfaðardal Dalvíkurbyggð er um 18.2ha að stærð og afmarkast að norðan af landamerkjum við Hrafnsstaðakot og að sunnan af landamerkjum við Syðra Holt. Svæðið er skilgreint í aðalskipulagi frá 2008 – 2020 sem landbúnaðarsvæði með sérákvæðum og opið svæði til sérstakra nota.

Fyrir á svæðinu er lóð undir kjúklingabú og bifreiðaverkstæði.

Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir auk fyrrgreindra atvinnugreina að heimilt verði að stunda frístundafjárbúskap á lóðum á suðurhluta svæðisins.
Á skipulagssvæðinu eru alls tólf lóðir; ein athafnalóð, níu lóðir undir frístundafjárbúskap, ein stór lóð er undir kjúklingabú og einn skógræktarreitur.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis í Ráðhúsinu á Dalvík frá og með 16. desem¬ber 2011 og til og með 31. janúar 2012. Einnig er skipulagstillagan til kynningar á heimasíðu sveitarfélagsins: www.dalvik.is

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna. Athugasemdafrestur er til 31. janúar 2012. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila inn á bæjarskrifstofur Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu á Dalvík. Hver sá, sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekinn frest, telst samþykkur henni.

Byggingafulltrúi Dalvíkurbyggðar

Uppdráttur af Ytra-Holti

Greinargerð Ytra-Holti