Auglýsing vegna deiliskipulagstillögu

Þann 30. júní 2011 auglýsti bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar tillögu að athafnasvæði í landi Ytra-Holts í Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð.
Í áður auglýstri deiliskipulagstillögu var vísað í úreld skipulagslög og er það hér með leiðrétt og verður tillagan auglýst samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Skipulagsvæðið Ytra-Holt í Svarfaðardal, Dalvíkurbyggð, er um 18 ha að stærð og afmarkast að norðan af landamerkjum við Hrafnsstaðakot og að sunnan af landamerkjum við Syðra Holt. Svæðið er skilgreint í aðalskipulagi frá 2008 - 2020 sem athafnasvæði og opið svæði til sérstakra nota.
Fyrir á svæðinu er lóð undir kjúklingabú og bifreiðaverkstæði.


Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir auk fyrrgreindra atvinnugreina að heimilt verði að stunda frístundafjárbúskap á lóðum á suðurhluta svæðisins.
Á skipulagssvæðinu eru skipulagðar samtals sautján lóðir; fimm af þeim eru skipulagðar sem almennar athafnalóðir, níu lóðir eru eingöngu ætlaðar undir frístundafjárbúskap, ein stór lóð er undir kjúklingabú, einn skógræktarreitur og loks er gæludýragrafreitur.


Athugasemdafrestur á áður auglýstri deiliskipulagstillögu er leiðréttur hér með og verður tillagan til sýnis í Ráðhúsinu á Dalvík og á heimasíðu Dalvíkurbyggar www.dalvikurbyggd.is frá og með 30. júní 2011 og til og með 17. ágúst 2011.


Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna. Athugasemdafrestur er til 17. ágúst 2011. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila inn á bæjarskrifstofur Dalvíkurbyggðar, Ráðhúsinu á Dalvík. Hver sá, sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tiltekinn frest, telst samþykkur henni.

Byggingafulltrúi Dalvíkurbyggðar

Deiliskipulagstillagan

Greinargerð