Auglýsing um móttöku framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð 16. maí 2026.

Auglýsing um móttöku framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð 16. maí 2026.

Frestur til að skila inn framboðslistum vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Yfirkjörstjórn Dalvíkurbyggðar tekur á móti framboðsgögnum föstudaginn 10. apríl milli kl. 11:00 og 12:00 í fundarsalnum Upsa á 3. hæð Ráðhússins á Dalvík. Yfirkjörstjórn mun funda um gildi framboðanna sama dag kl. 16:00 á sama stað. Umboðsmönnum framboða er heimilt að vera viðstaddir þann fund.

Framboðslistunum skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listunum eru um að þeir hafi gefið samþykki sitt fyrir því að nöfn þeirra séu á listunum. Framboðslistunum skal einnig fylgja yfirlýsing frá kjósendum í Dalvíkurbyggð um stuðning við listana, að lágmarki 20 meðmælendur og að hámarki tvöföld sú lágmarkstala. Yfirlýsingunum skal helst skilað í rafrænu meðmælakerfi á www.island.is, annars á pappír. Fram þarf að koma nöfn meðmælenda, kennitölur þeirra og heimili. Vakin er athygli á því að hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista við hverjar kosningar, samanber lög nr. 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna.

Þegar listum er skilað til yfirkjörstjórnar skal þeim fylgja staðfesting á skráðu heiti og listabókstaf nýrra stjórnmálasamtaka.

Dalvík 10. mars 2026, Yfirkjörstjórn Dalvíkurbyggðar,

Bjarni Jóhann Valdimarsson
Helga Kr. Árnadóttir
Ingibjörg María Ingvadóttir