Auglýsing um móttöku framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð 14. maí 2022

Auglýsing um móttöku framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalvíkurbyggð 14. maí 2022

Sveitarstjórnakosningar verða laugardaginn 14. maí 2022.

Framboð þarf að tilkynna skriflega til yfirkjörstjórnar eigi síðar en á hádegi 36 dögum fyrir kjördag. Frestur til að skila inn framboðslistum er því til kl. 12 á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022.

Yfirkjörstjórn Dalvíkurbyggðar tekur á móti framboðsgögnum, föstudaginn 8. apríl milli kl. 11:00 og 12:00 í fundarsal Ráðhússins á Dalvík. 

Yfirkjörstjórn mun funda um gildi framboðanna sama dag kl. 16:00 á sama stað. Umboðsmönnum framboða er heimilt að vera viðstaddir þann fund.

Framboðslistunum skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listunum eru um að þeir hafi gefið samþykki sitt fyrir því að nöfn þeirra séu á listunum. Framboðslistunum skal einnig fylgja skrifleg yfirlýsing frá kjósendum í Dalvíkurbyggð um stuðning við listana, að lágmarki 20 meðmælendur og að hámarki tvöföld sú lágmarkstala. Fram þarf að koma nöfn meðmælenda, kennitölur þeirra og heimili. Vakin er athygli á því að hver kjósandi má einvörðungu mæla með einum lista við hverjar kosningar sbr. lög sem tóku gildi 1. janúar 2022 um kosningar til sveitarstjórna.

Vekjum athygli á breytingum á kosningalögum. Þegar listum er skilað til yfirkjörstjórnar skal þeim fylgja staðfesting á skráðu heiti og listabókstaf nýrra stjórnmálasamtaka.

Dalvík 18. mars 2022,
yfirkjörstjórn Dalvikurbyggðar,

Helga Kr. Árnadóttir
Ingibjörg María Ingvadóttir
Bjarni Jóhann Valdimarsson