Auglýsing um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega

Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur til að sækja um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts rennur út þann 30. júní n.k. Því er beint til þeirra sem hafa hugsað sér að sækja um lækkun fasteignaskatts að ekki er tekið við umsóknum eftir 30. júní fyrir það ár sem um ræðir. Með umsókn skal fylgja staðfest afrit skattaskýrslu og örorkumatsvottorð ef við á.

Reglur um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega má finna á heimasíðu Dalvíkurbyggðar, www.dalvik.is sem og eyðublað sem skila skal með tilheyrandi gögnum.