Ástrós Lena 6 ára

Ástrós Lena 6 ára

Á morgun, 17. apríl verður Ástrós Lena 6 ára. Að því tilefni gerði hún sér kórónu í morgun og bauð upp á ávexti í ávaxtastund. Þar sungum við fyrir hana afmælissönginn. Ástrós Lena aðstoðaði Dóru að flagga í tilefni dagsins. Í lok apríl verður svo haldið sameiginlega upp á afmæli allra apríl-barna.