Ásdís Inga 5 ára

Ásdís Inga 5 ára

Þann 19. apríl varð Ásdís Inga 5 ára. Við héldum upp á afmælið hennar í leikskólanum 16. apríl þar sem afmælisdagurinn var akkúrat í páskafríinu. Hún bjó til glæsilega kórónu, flaggaði íslenska fánanum, bauð upp á ávexti í ávaxtastundinni ásamt Lovísu og svo var afmælissöngurinn sunginn fyrir hana. Við óskum Ásdísi Ingu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með daginn.