Ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025

Ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025

Kæru íbúar.

Ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025 var tekin til fyrri umræðu í sveitarstjórn á þriðjudaginn var. Ljóst er að fjárhagsleg staða Dalvíkurbyggðar er sterk og rekstrargrundvöllur sveitarfélagsins er góður.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt lögum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða að meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.

Samstæða Dalvíkurbyggðar, þ.e. Aðalsjóður, Eignasjóður, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Hafnasjóður, Hitaveita og Vatnsveita, var rekin með 274,5 millj. kr. afgangi.
Samtals voru rekstrartekjur samstæðunnar á árinu 2025, 3.971 milljónir króna, sem nemur hækkun rekstrartekna á milli ára um 60 milljónir króna.

Annar rekstrarkostnaður í hlutfalli af rekstrartekjum var 31,7% sem er 0,6% undir áætlun en var 33,2% árið 2024 sem var 0,5% yfir áætlun. Við yfirferð síðasta ársreiknings fyrir árið 2024 hafði annar rekstrarkostnaður hækkað um 67,2 milljónir króna á milli ára en frá árinu 2024 – 2025 hækkar hann um 12 milljónir króna. Þetta verður að segjast vera góð þróun.

Samkvæmt yfirliti um sjóðsstreymi nam veltufé frá rekstri rúmum 479 millj. kr. sem er svotil upp á krónu sama fjárhæð og áætlað var fyrir í fjárhagsáætlun ársins 2025. Þá nam handbært fé frá rekstri í árslok 470,4 millj. kr. en það er sú upphæð sem sveitarfélagið hefur til ráðstöfunar til framkvæmda og greiðslu lána og er sú tala sem horfa á til þegar fjárfestingar næsta árs eru ákveðnar.

Fjárfestingahreyfingar námu samtals 658,5 millj. kr sem er yfir áætlun ársins sem hljóðaði upp á 615,9 milljónir, mismunur upp á 42,6 milljónir rétt rúmar. Þar með má segja að við höfum náð í skottið á okkur hvað fjárfestingar varðar. Þrátt fyrir að stór verkefni frestuðust yfir á þetta ár, en önnur minni voru tekin í staðinn.

Afborgun langtímalána nam tæpum 124,2 millj. kr., og voru engin ný langtímalán tekin á árinu.

Heildarlaunagreiðslur með launatengdum gjöldum en án lífeyrisskuldbindinga hjá samstæðunni voru 2.052 millj.kr., eða 51,67% í hlutfalli af rekstrartekjum. Það varð töluverð hækkun á lífeyrisskuldbindingum samstæðunnar á árinu 2025 eða um 63 millj.kr. og eru þær samtals 133 millj.kr. í árslok 2025. Þessi hækkun hefur síðan áhrif á það að skuldaviðmið samstæðunnar hækkar í 18,4% í árslok en var 14,6% í fyrra.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 6.936 millj. kr en þar af voru veltufjármunir 910,6 millj. kr.

Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi 2.111 millj. kr. en þar af voru skammtímaskuldir 501,9 millj. kr.

Skuldahlutfall samstæðunnar þ.e. heildarskuldir og skuldbindingar A og B hluta um áramót var 53,2% en hámark samkvæmt lögum er 150%.

Veltufjárhlutfallið var 1,81 í árslok 2025 en var 2,21 árið áður. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 4.824,6 millj.kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 3.617,5 millj. kr. Eiginfjárhlutfall var 69,6%.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður síðari umræða um hann til umfjöllunar í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar þann 12. maí nk.

Að yfirferð lokinni er það því nokkuð ljóst að niðurstaða ársreiknings Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025 er góð og fjárhagur sveitarfélagsins er traustur.

Það er að mínu mati fyrst og fremst að þakka styrkri fjármálastjórn þar sem unnið er eftir skýrum verkferlum og eftirfylgni við fjárhagsáætlun hvers árs.

Ég viðurkenni fúslega að ég er ákaflega hreykin af þessari góðu niðurstöðu, og það skiptir máli að halda henni á lofti. Verum stolt, þar skiptir öllu máli að kjörnir fulltrúar, starfsfólk sveitarfélagsins, atvinnulífið og allir íbúar eiga sinn þátt í þeirri góðu stöðu sem sveitarfélagið er í. Um hana þarf að standa vörð til þess að geta veitt góða þjónustu og byggt upp þá innviði sem hverju sveitarfélagi eru mikilvægir.

Nú eru kosningar á næsta leiti og mér þykir mikilvægt að geta lagt á borð svo góða niðurstöðu af rekstri á síðastliðnu ári sem og allt kjörtímabilið. Við eigum gott samfélag og um það verðum við að standa vörð.

Gleðilegt sumar kæru íbúar.

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri