Ársreikningur 2009 - fyrri umræða í bæjarstjórn í dag

Ársreikningur 2009 til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag.
Niðurstöður staðfesta traustan rekstur sveitarfélagsins.


Ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2009 er til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var jákvæð um 127,0 millj.kr. á árinu 2009 og rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 174,8 millj.kr.
Rekstrartekjur á árinu 2009 námu 1.393,2 millj.kr. samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta, sem er 3% hærra en áætlað var. Rekstrartekjur A hluta námu 1.159,2 millj.kr. sem er 2% hærra en áætlað var.

Eigið fé sveitarfélagsins, A og B hluta, í árslok 2009 nam 1.246,2 millj.kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en eigið fé A hlutans nam 966,3 millj.kr.

Eiginfjárhlutfall A og B hluta var 0,43 í lok árs 2009 sem er örlítil hækkun frá fyrra ári, var 0,42 árið 2008.
A og B hluti skiluðu samtals kr. 322 millj.kr. í veltufé frá rekstri, en áætlun gerði ráð fyrir 287 millj.kr. Veltufé frá rekstri er það fjármagn sem sveitarfélagið hefur til að greiða niður skuldir og framkvæma fyrir.

Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum var 240.705 millj.kr.

Hitaveita Dalvíkurbyggðar tók 160 millj. kr. lán á árinu, þar af 50 millj.kr. til skuldbreytingar.
Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 631,4 millj.kr. eða um 45,3% af rekstrartekjum, en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu nam 115 stöðugildum.
Annar rekstrarkostnaður á árinu nam alls 433,6 millj.kr. eða 31,15% af rekstrartekjum.
Íbúafjöldi 1. desember 2009 var 1.951 og hafði þá fjölgað um 9 frá fyrra ári.