Árskógarskóli - laust starf umsjónarkennara

Árskógarskóli - laust starf umsjónarkennara

Árskógarskóli auglýsir eftir umsjónarkennara skólaárið 2020-2021. Um er að ræða 100% stöðu umsjónarkennara 5. – 7. bekkjar.

Menntun og hæfni:

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Kennslureynsla á grunnskólastigi æskileg
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
  • Skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði í starfi
  • Færni í að koma til móts við ólíkar þarfir allra nemenda
  • Færni í notkun tækni í skólastarfi

Sótt er um í gegnum íbúagátt Dalvíkurbyggðar, min.dalvikurbyggd.is. Umsókn skal fylgja ferilskrá og meðmæli. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að framvísa sakavottorði ef til ráðningar kemur.

Umsóknarfestur er til og með 30. apríl 2020.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Nánari upplýsingar um skólastarfið er hægt að nálgast á heimasíðu skólans https://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli

Frekari upplýsingar veitir Friðrik Arnarson, skólastjóri í síma 460 4983 og 849 0980 eða í netpósti fridrik@dalvikurbyggd.is.

Árskógarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 13 börn á leikskólastigi og 22 nemendur í 1. – 7. bekk. Í skólanum er samkennsla í tveimur umsjónarhópum og mikið samstarf við leikskólann. Skólinn vinnur eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar og Byrjendalæsis. Lögð er áhersla á snemmtæka íhlutun í stuðningskennslu og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Skólinn er Grænfánaskóli og leggur ríka áherslu á notkun snjalltækja í kennslu.