Árshátíð Dalvíkurskóla

Árshátíð Dalvíkurskóla verður haldin í vikunni, dagana 13. og 14. apríl. Börn undir grunnskólaaldri fá frítt á allar sýningar en fullorðnir greiða 800 kr. Skipulag sýninganna er sem hér segir: 

Miðvikudagur 13. apríl

Nemendasýning kl. 09:00, skyldumæting fyrir 1. – 5. bekk.
(nemendur í 1. – 5. bekk mæta kl. 08:00).

Nemendasýning kl. 11:30, skyldumæting fyrir 6. – 10. bekk.
(Nemendur í 6. – 10. bekk mæta kl. 11:20).

Yngri systkini og aðrir gestir einnig velkomnir.

Almenn sýning kl. 14:00

Fimmtudagur 14. apríl.

Almenn sýning kl. 15:00
Almenn sýning kl. 18:00

ATH. Almennu sýningarnar eru ekki fyrir nemendur. 10. bekkur selur veitingar í hléi á almennu sýningunum. Gengið er inn um aðalinngang.