Árshátíð Dalvíkurskóla 2013

Árshátíð Dalvíkurskóla er haldin í þessari viku en að þessu sinni er þemað Astrid Lindgren. Almennar sýningar eru miðvikudaginn 20. mars kl. 17:30 og fimmtudaginn 21. mars kl. 14:00 og 17:00.

Verð fyrir fullorðna er 800 kr. Nemendur 10. bekkjar selja léttar veitingar í hléi.

Foreldrar eru beðnir að sýna því skilning að almennu sýningarnar eru ekki ætlaðar nemendum. Ef áhorfendur þurfa að yfirgefa salinn áður en sýningu er lokið, vinsamlegast gerið það í hléi til að truflun verði sem minnst.

Hérna er smá myndband um árshátíðina