Árshátíð Árskógarskóla

Árshátíð Árskógarskóla

Árshátíð Árskógarskóla var haldin í gærkveldi fyrir fullu húsi í Árskógi. Nemendur fluttu leikverk bæði sígíld og frumsamin. Mikið var af efnilegu leiklistarfólki og góðum eftirhermum. Logi í beinni fékk ýmsa góða gesti til sín og Mikki refur reyndi enn einu sinni að ná Lilla klifurmús. Kennarar, foreldrar og börn skemmtu sér hið besta saman og borðuðu vöfflur á eftir. Árshátíð Dalvíkurskóla er næst á dagskrá og er 12. og 13. mars.

 Árshátíð Árskógarskóla 2Árshátíð Árskógarskóla 3Árshátíð Árskógarskóla 4