Appelsínugul viðvörun frá Veðurstofu Íslands

Viðvörun frá veðurstofu Íslands
Viðvörun frá veðurstofu Íslands

Veðurstofa Íslands er búin að gefa út appelsínugula viðvörun fyrir þriðju- og miðvikudag. Björgunarsveitin á Dalvík hefur uppi vinsamleg tilmæli um að fólk hugi að öllu lauslegu, sem og að eigendur báta hugi vel að þeim, þar sem búist er við hækkandi sjávarstöðu. Þá mælir Björgunarsveitin einnig með því að fólk sé ekki á ferðinni að óþörfu.