Ályktun sveitarstjórnar vegna Húsasmiðjunnar

Ályktun sveitarstjórnar vegna Húsasmiðjunnar

Sveitarstjórn fagnar þeirri ákvörðun, eins og fram hefur komið, að fresta eigi lokun Húsasmiðjunnar á Dalvík um eitt ár til reynslu eftir þrýsting frá íbúum, fyrirtækjum og sveitarfélaginu. Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar hvetur íbúa og fyrirtæki í sveitarfélaginu til að styðja við viðskipti, verslun og þjónustu í heimabyggð þannig að hér verði gott vöruúrval á góðu verði með góðri þjónustu, þannig getum við sem samfélag styrkt innviði sveitarfélagsins og stuðlað að öflugu og fjölbreyttu atvinnulífi