Alþjóðlegur dagur gegn einelti

Eineltisteymi starfsmanna Dalvíkurbyggðar vill vekja athygli á því að í dag, föstudaginn 8. nóvember, er alþjóðlegur dagur gegn einelti.

Á vefnum www.gegneinelti.is  er fólk um allan heim hvatt til að sýna samstöðu í baráttunni gegn einelti með því að hringja alls konar bjöllum kl. 13:00 samfellt í sjö mínútur, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar. Við hér í Dalvíkurbyggð ætlum að hringja skólabjöllunum. 

Eineltisteymið hvetur íbúa Dalvíkurbyggðar til að sýna samstöðu í baráttunni gegn einelti og kynbundnu ofbeldi.