Alþingiskosningar 27. apríl 2013

Kjörskrá vegna Alþingiskosninga liggur frammi, almenningi til sýnis frá 17. apríl fram að kjördegi, í þjónustuveri bæjarskrifstofu í Ráðhúsi Dalvíkur á venjulegum opnunartíma, alla virka daga frá kl. 10:00-15:00.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Einnig er hægt að skoða kjörskrá inná síðunni www.kosning.is

Tekið verður á móti athugasemdum við kjörskrá í þjónustuveri bæjarskrifstofu á venjulegum opnunartíma fram að kjördegi.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar.