Almennur borgarafundur um málefni MTR

Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð boða til almenns borgarafundar um málefni Menntaskólan á Tröllaskaga. Fundurinn verður haldinn í Menningarhúsinu Tjarnarborg á Ólafsfirði fimmtudaginn 28. maí næstkomandi kl. 19:30.


Dagskrá:

1. Sameining við MA og Framhaldsskólann á Húsavík.

2. Samvinna framhaldsskóla á Eyjafjarðarsvæðinu

Framsögumaður er Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.

Íbúar eru hvattir til að mæta og hlusta á málflutning ráðherra og jafnframt koma skoðunum sínum á framfæri.


Bjarni Th. Bjarnason sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri Fjallabyggðar