Allan Ingi kveður Leikbæ - júní 2012

Allan Ingi kveður Leikbæ - júní 2012

 

Föstudaginn 29. júní hætti Allan Ingi á Leikbæ en hann hefur grunnskólagöngu í haust. Allan kom færandi hendi síðasta daginn, bauð öllum upp á ís og í kveðjugjöf frá leikskólanum færðum við honum myndabók frá árunum hans á Leikbæ. Við þökkum Allan Inga innilega fyrir dvölina hjá okkur og óskum honum og fjölskyldu hans alls hins besta í komandi framtíð. Hann fer þó ekki langt og því sjáumst við hress og kát í nýja skólanum okkar næsta haust.

Takk fyrir okkur Allan Ingi :-)

Kveðjumyndir