Alexander Már 5 ára

Alexander Már 5 ára

Alexander Már hélt upp á afmælið sitt í dag en hann varð 5 ára 3. október. Hann er nýkominn heim eftir tveggja vikna ferð með fjölskyldunni til Flórída. Við vorum svo glöð að fá hann aftur í leikskólann en við byrjuðum á því að flagga fyrir hann í tilefni dagsins. Síðan sungum við afmælissönginn og svo fékk afmælisbarnið að sjálfsögðu að vera þjónn!  Til hamingju með afmælið þitt elsku Alexander Már :)