Aldan flutt

Eins og einhverjir kunna að hafa tekið eftir er nú verið að fjarlægja listaverkið Ölduna af Ráðhúslóðinni og verður það flutt í geymslu uppí Böggvisstaðaskála. Framkvæmdir við Menningarhús munu hefjast nú á haustmánuðum og hefur svæðið þegar verið girt af en Aldan stendur nú á því svæði sem Menningarhúsið mun rísa. Jóhanna Þórisdóttir hannaði verkið á sínum tíma og var það Björn Bjarnason sem afhjúpaði Ölduna.