Álagning fasteignagjalda 2013

Íbúar og aðrir greiðendur fasteignagjalda í Dalvíkurbyggð vinsamlegast athugið. Álagningarseðlar vegna fasteignagjalda fyrir árið 2013 verða ekki sendir út í pósti. Álagningarseðlar eru birtir rafrænt á island.is, við innskráningu þar er notaður veflykli ríkisskattstjóra eða rafræn skilríki.

Álagning fasteignagjalda birtist einnig á Mín Dalvíkurbyggð á heimasíðu Dalvíkurbyggðar www.dalvikurbyggd.is  . Greiðsluseðlar eru ekki sendir út á pappír en verða þó áfram sendir til þeirra sem sérstaklega hafa óskað eftir að fá áfram senda greiðsluseðla. Almennir gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2013 eru 10 og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Kröfur vegna fasteignagjalda birtast sem fyrr í netbanka greiðanda.

Allir greiðendur fasteignagjalda, sem og annarra gjalda frá Dalvíkurbyggð, geta séð útgefna reikninga á sinni kennitölu undir Mín Dalvíkurbyggð á www.dalvikurbyggd.is  og eru íbúar hvattir til að kynna sér þennan nýja  möguleika í upplýsingagjöf.