Áhrif Héðinsfjarðargangna á samfélögin á norðanverðum Tröllaskaga - Ráðstefna

Áhrif Héðinsfjarðargangna á samfélögin á norðanverðum Tröllaskaga - Ráðstefna

Í tilefni af því að fimm ár eru frá því að Héðinsfjarðargöng voru opnuð boða Fjallabyggð og Háskólinn á Akureyri til ráðstefnu þar sem helstu niðurstöður rannsóknarinnar á áhrifum Héðinsfjarðargangnanna á samfélögin á norðanverðum Tröllaskaga verða kynntar.

Ráðstefnan fer fram í Menningarhúsinu Tjarnarborg Ólafsfirði föstudaginn 2. október n.k. og stendur yfir frá kl. 14:00-17:00. Allir velkomnir.

Dagskrá:

Ávarp: Hreinn Haraldsson vegamálastjóri

Þóroddur Bjarnason:
Samgöngur og byggðaþróun: Samfélagsleg áhrif Héðinsfjarðargangna

Jón Þorvaldur Heiðarsson:
Stóðst umferðarspáin? Hvað má af henni læra.

Sonja Stelly Gústafsdóttir:
Sýn íbúa Fjallabyggðar á heilbrigðisþjónustuna.

Kjartan Ólafsson:
Skammtímaáhrif Héðinsfjarðargangnanna á mannfjöldaþróun.

Andrea Hjálmarsdóttir:
Staða kynjanna fyrir og eftir opnun Héðinsfjarðargangnanna.

Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar:
Samgöngur og samstarf?

Steinunn María Sveinsdóttir, formaður bæjarráðs Fjallabyggðar:
Hvaða þýðingu hafa göngin haft fyrir Fjallabyggð?

Pallborðsumræður: Stjórnandi Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar.

Ráðstefnustjóri: Sigrún Stefánsdóttir, sviðsforseti hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri