Agla Katrín 2 ára

Agla Katrín 2 ára

 

Agla Katrín hélt upp á 2 ára afmælið sitt í dag, en hún átti afmæli þann 15. maí. Hún byrjaði daginn á að setja upp afmæliskórónu sem hún ahfði búið til og fór út og flaggaði íslenska fánanum í tilefni dagsins. Svo bauð hún börnunum á Skýjaborg til ávaxtaveislu og að sjálfsögðu var sungið henni til heiðurs. Við óskum henni hjartanlega til hamingju með daginn!