Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir umsóknum í Afreks- og styrktarsjóð.
Helstu markmið sjóðsins eru að styðja og veita viðurkenningu fyrir góðan árangur og öflugt íþrótta-, félags- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu. Einnig að veita viðurkenningar til félaga fyrir gott fordæmi á sviði almenningsíþrótta.
Styrkumsóknir skulu berast sjóðsstjórn í gegnum Mína Dalvíkurbyggð eigi síðar en sunnudaginn 30. nóvember 2014.
Nánari upplýsingar og eyðublað sjóðsins er að finna á Mín Dalvíkurbyggð.