Afreks- og styrktarsjóður Dalvíkurbyggðar


Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir umsóknum í Afreks- og styrktarsjóð.


Helstu markmið sjóðsins eru að styðja og veita viðurkenningu fyrir góðan árangur og öflugt íþrótta-, félags- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu. Einnig að veita viðurkenningar til félaga fyrir gott fordæmi á sviði almenningsíþrótta.


Styrkumsóknir skulu berast sjóðsstjórn skriflega á Mín Dalvíkurbyggð eigi síðar en fimmtudaginn 21. nóvember 2013.


Nánari upplýsingar og eyðublað sjóðsins er að finna á Mín Dalvíkurbyggð.