Afmælisveisla maíbarna

Afmælisveisla maíbarna

Í gær, miðvikudaginn 18. maí, var haldin sameiginleg afmælisveisla fyrir öll börn Kátakots sem eiga afmæli í maí. Það eru þau Alexandra Líf, Aníta, Birta Líf og Markús Máni. Ása útbjó ávaxtaspjót sem þau buðu upp á í ávaxtastundinni og afmælissöngurinn var sunginn fyrir þau. Við óskum afmælisbörnum mánaðarins innilega til hamingju með daginn sinn. Þess má geta að Dóra og Amanda Liv eiga einnig afmæli í maí. Hér fyrir neðan sjáið þið nokkrar myndir sem teknar voru í gær.