Afleysing fyrir upplýsingafulltrúa og framkvæmdastjóra Menningarfélagsins Bergs ses.

Nú er búið að vinna úr innsendum umsóknum um afleysingu fyrir upplýsingafulltrúa og framkvæmdastjóra Menningarfélagsins Bergs ses. en Margrét Víkingsdóttir sem gengt hefur þessu starfi mun brátt fara í fæðingarorlof.  Alls bárust 10 umsóknir.

Ákveðið hefur verið að ráða Guðrúnu Guðmundsdóttir, í starfið og mun hún hefja störf þann 16. febrúar næstkomandi og starfa út árið 2010. Guðrún er arkitekt og var framkvæmdastjóri Arkitektafélags Íslands um árbil.

Við bjóðum Guðrúnu velkomna til starfa.