Aðventurölt á Dalvík

Aðventurölt á Dalvík

Hið árlega aðventurölt á Dalvík verður fimmtudagskvöldið 1. desember milli kl. 19:00-22:00. Kruðerí, kósíheit, kertaljós og knús.

Eigum saman skemmtilegt kvöld á aðventunni, njótum stundarinnar, röltum um, hittum fólk, kaupum jólagjafirnar, njótum veitinga og óvæntra uppákoma.

Tilboð - smakk -  markaður - Gleði og aðventustemming eins og hún gerist best.

Eftirtaldir hlakka til að fá þig í heimsókn:

  • Loppumarkaðurinn Hólavegi 15
  • Ílit snyrtistofa
  • Menningarhúsið Berg markaður
  • Samkaup Úrval
  • Gísli Eiríkur og helgi - Kaffihús Bakkabræðra
  • Hjá Sögu-Hárgreiðslustofa
  • Húsasmiðjan
  • Draumablá
  • Basalt Café+Bistro