8.bekkjarkvöld

Á miðvikudaginn 14.september ætlum við í félagsmiðstöðinni Pleizið að bjóða 8.bekkinn okkar sérstaklega velkominn. Til þess blásum við til veislu og köllum hana 8.bekkjarkvöld. Gleðin hefst klukkan 19:30 og stendur til klukkan 22:00. Aðeins nemendur 8.bekkjar mega koma! Farið verður í pógó, spilað, spjallað og notið þess að vera til. Endilega fjölmennum.