5. bekkur Dalvíkurskóla í heimsókn hjá sveitarstjóra

5. bekkur Dalvíkurskóla í heimsókn hjá sveitarstjóra

Nemendur í 5. bekk við Dalvíkurskóli kíktu nýverið í heimsókn til sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar.

Tilgangurinn var að fræðast um hvernig sveitarfélagið virkar og hvað sveitarstjóri gerir eiginlega allan daginn. Eyrún Ingibjörg   Sigþórsdóttir tók vel á móti hópnum og svaraði spurningum þeirra sem voru svo sannarlega fjölbreyttar og skemmtilegar. Ein spurningin   vakti sérstaka athygli: „Af hverju er ekki rússíbanagarður í Dalvíkurbyggð?“
Nemendur voru forvitnir um allt frá því hvernig ákvarðanir eru teknar yfir í það hvort sveitarstjórinn fái einhvern tíma frí. Það var greinilegt  að hópurinn hafði hugsað málið vel og sýndi mikinn áhuga á umræðunni.

Nemendur biðu svo spenntir í röð eftir að fá að setjast í stól sveitarstjóra – og hver veit   nema einhver þeirra setjist þar aftur í framtíðinni?

Nemendurnir fengu einnig að kynnast því hvernig það er að sitja sveitarstjórnarfund og voru þau hvött til þess að mæta á næsta fund sem áheyrnarfulltrúar en þau voru ekki   alveg viss um að geta setið kyrr og með algjöra þögn meðan fundurinn færi fram, nema   að það væri spennandi fundur, sem sveitarstjórnarfundir eru reyndar alltaf.

Heimsóknin tókst afar vel og skildu bæði nemendur og sveitarstjóri sátt við daginn. Svona heimsóknir eru frábær leið til að kynnast samfélaginu betur – og hver veit nema einhver úr hópnum eigi eftir að taka sæti í sveitarstjórn síðar meir.