20 feb 12 Bolludagur

20 feb 12 Bolludagur

Bolludagurinn var haldinn hátíðlegur á Leikbæ þann 20 febrúar 2012. Börnin sungu bolludagslag og fengu bollur í stað ávaxta fyrir útiveru.

Hér má sjá fleiri myndir.

Bolludagslagið.

Á bolludegi fer ég með bolluvönd á kreik.
Mér alltaf þykir gaman að iðka þennan leik.
Ég bolla og bolla, á bossann á þér fast ég slæ,
bolla og bolla og bollu í laun ég fæ.
Já, bragðgóðar eru bollurnar, bollurnar, bollurnar,
já, bragðgóðar eru bollurnar, húllum hæ.

Lag: Við erum söngvasveinar
Texti: Herdís Egilsdóttir.